Photos

Súpukeppni haldin í fyrsta skipti á Kjötsúpuhátíðinni

Í ár verður nýjung á Kjötsúpuhátíðinni á Hvolsvelli þegar súpukeppni fer fram laugardaginn 29. ágúst. Nú þegar hafa 13 þátttakendur skráð sig til leiks og sjö manna dómnefnd er tilbúin til að smakka og meta framlögin.

Keppt er í tveimur flokkum. Annars vegar er keppt um bestu íslensku kjötsúpuna þar sem hefðin ræður ríkjum með lambakjöti og rótargrænmeti. Hins vegar er flokkur fyrir allar aðrar súpur en þá íslensku. Þar er opið fyrir fjölbreyttar útfærslur, hvort sem um ræðir fiskisúpur, sveppasúpur eða vegan rétti. Pláss er fyrir tólf þátttakendur í hvorum flokki.

Fyrirkomulag keppninnar er einfalt. Keppendur koma með um það bil einn lítra af súpu í potti og geta hitað hana upp á staðnum á spanhellum. Til að tryggja sanngirni skammtar hver keppandi sína súpu en óháður aðili ber hana síðan fram fyrir dómnefndina. Þannig er tryggt að smökkunin fari fram með hlutlausum hætti þar sem dómarar vita ekki hver á hvaða súpu. Sigurvegarar í báðum flokkum munu hljóta vegleg verðlaun.

Áhugasamir geta nálgast frekari upplýsingar og skráð sig til leiks inni á heimasíðu Kjötsúpuhátíðarinnar eða með því að senda tölvupóst á Braga í netfangið [email protected]. Við hvetjum íbúa og gesti til að fínpússa uppskriftirnar og taka þátt í þessari nýjung á hátíðinni.

Allt um súpukeppnina og skráningu má nálgast hér: https://kjotsupuhatid.is/supukeppni

All news