Samfélagið okkar

Samfélags­viðurkenning

Viðurkenning Rangárþings eystra til þeirra sem standa sig afburða vel í að efla samfélagið.

Frestur: 10. ágúst 2026
Um viðurkenninguna

Hver á skilið hrós?

Viðurkenningin er veitt þeim einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í Rangárþingi eystra sem þykir standa sig afburða vel í að efla samfélagið og vera öðrum jákvæð fyrirmynd. Viðurkenningin er afhent við hátíðlega athöfn á Kjötsúpuhátíðinni laugardaginn 29. ágúst.

Frestur er liðinn

Það er ekki lengur hægt að senda inn tilnefningar í þennan flokk — takk fyrir allar þær sem bárust. Viðurkenningin verður afhent á fjölskylduskemmtuninni á miðbæjartúninu laugardaginn 29. ágúst.

Í gegnum árin

Fyrri handhafar

Viðurkenningin var stofnuð af markaðs- og menningarnefnd 5. júní 2023.

2025Aðalheiður Margrét Gunnarsdóttir (Alla)Fyrir mikið framlag til félags- og menningarlífs: uppsetningu leiksýninga á borð við Litlu hryllingsbúðina, dansnámskeið í Goðalandi og spilamennsku á jólaböllum í Fljótshlíð.
2024Ungliðadeild Björgunarsveitarinnar Dagrenningar
2023MidgardFyrsta viðurkenningin. Veitt fyrir að setja svæðið á kortið sem ferðamannastað, áherslu á sjálfbærni og umhverfisvernd og mikinn stuðning við tónlistarlíf með tónleikahaldi.
← Allir flokkar
Deila