2025Gunnhildur Þórunn JónsdóttirListmálari. Valin eftir tilnefningar frá íbúum fyrir listmálun sína, þar sem hún málar mikið af hestum, sauðfé og landslagi.
2024Jens Sigurðsson (Jenni)Gítarleikari sem kenndi í Tónlistarskóla Rangæinga í 25 ár. Valinn fyrir tónlistar- og kórastarf og spilamennsku með hljómsveitum á borð við Hjónabandið og Vini Jenna.
2023Hjálmar ÓlafssonHúsasmíðameistari. Valinn fyrir hagleik í útskurði og smíði og fyrir að miðla þekkingu sinni til annarra, meðal annars í tengslum við Gamla bæinn í Múlakoti.
2022Hlynur Snær TheodórssonValinn fyrir söng og spilamennsku, vikulegt tónlistarstreymi með fjölskyldu sinni, kórastarf og fyrir að semja lög og texta.
2021Valborg ÓlafsdóttirTónlistarkennari og bóndi. Valin fyrir frumlega tónlistar- og textagerð, lifandi flutning, útgáfu plötunnar Silhouette og heimilislega tónleika í ferðaþjónustu sinni.
2020Guðjón Halldór ÓskarssonKennari við Tónlistarskóla Rangæinga og organisti. Valinn fyrir að byggja upp tónlistarlíf, stjórna kórum og spila í netstreymi á tímum samkomutakmarkana.
2019Maríanna MásdóttirValin fyrir langt og gott starf í sveitarfélaginu.
2018Kristjana K. Jónsdóttir (Sjana)Valin eftir sigur í hönnunarsamkeppni um Fullveldispeysuna, sem haldin var í tilefni af 100 ára afmæli fullveldisins.
2017Leikfélag Austur-EyfellingaValið fyrir gott leiklistarstarf, stórar sýningar og fyrir að vera leiðandi í leiklistarkennslu barna og ungmenna í gegnum leikhópinn Glætuna.
2016Ljósmyndaklúbburinn 860+Valinn fyrir fjölbreyttar útiljósmyndasýningar á Miðbæjartúninu á Hvolsvelli sem eru íbúum til ánægju.
2015Ingibjörg ErlingsdóttirTónmenntakennari. Valin fyrir öflugt tónlistarstarf barna og unglinga í sveitarfélaginu, kórastjórn og spilamennsku með ýmsum hljómsveitum.
2014Sigrún JónsdóttirListmálari og kennari við Hvolsskóla. Fyrsti handhafi viðurkenningarinnar. Valin fyrir falleg málverk og aðstoð við félagasamtök, meðal annars sviðsmynd fyrir Önnu frá Stóru Borg hjá Leikfélagi Austur-Eyfellinga.